Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar

RÚV ·

Ríkisstofnunum hefur fækkað um 18,7% frá því árið 2020 og telur Ríkisendurskoðun stjórnvöld hafa brugðist við að fullu við tveimur af fjórum tillögum sem lagðar voru fram um fjölda, stærð og stærðarhagkvæmni stofnana ríkisins. Á sama tíma hefur þó starfsmönnum ríkisins fjölgað um 23% frá því árið 2020. Þrjár skýrslur Ríkisendurskoðunar voru kynntar fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í morgun. Í skýrslunum kemur fram að það hafi verið yfirlýst stefna stjórnvalda undanfarinn einn og hálfan áratug að fækka stofnunum. Árangurinn hafi hins vegar ekki verið sá sem lagt var upp með og niðurstöðum starfshópa ekki fylgt eftir. Í þeim er farið yfir stofnanir innan ráðuneyta Stjórnarráðs Íslands, hvernig fjöldi þeirra hefur þróast og hvernig stjórnvöld brugðust við tillögum Ríkisendurskoðunar um fækkun þeirra. Þá var einnig skoðað hversu vel var staðið að þeim breytingum sem gerðar voru innan ráðuneytanna. Stöðugildum fjölgar þrátt fyrir færri stofnanir Skýrslur Ríkisendurskoðunar sneru mun fremur að fjölda stofnana fremur en fjölda starfsfólks en skoðað er hvernig fjöldi starfsfólks hefur þróast. Starfsfólki fjölgaði þó um 23 prósent og stöðugildum um 15 prósent. Þrjú ráðuneyti skera sig úr – heilbrigðis-, dómsmála- og menntamálaráðuneyti. Mest hefur aukning orðið innan heilbrigðisráðuneytisins þar sem starfsmenn fara frá tæpum 11 þúsund yfir í 13.700 frá 2020 til 2025. Langflest starfsfólk heyrir undir heilbrigðisráðuneytið. Næst mest fjölgaði starfsmönnum hjá dómsmálaráðuneytinu eða um 700 frá 2020 til 2025. Taka ber tölum menntamála- og dómsmálaráðuneytisins með nokkrum fyrirvara. Fyrrnefnda ráðuneytið gekk í gegnum mikla uppstokkun árið 2021 með skiptingu í barna- og menntamálaráðuneyti annars vegar og háskóla- og nýsköpunarráðuneyti hins vegar. Þá kann uppstokkun á verkefnum og skipan stofnana að hafa áhrif á tölur dómsmálaráðuneytisins. Umtalsverð fjölgun starfsmanna umfram stöðugildi kann að skýrast að hluta af styttingu vinnuvikunnar. Fyllilega brugðist við tveim

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 12:27:25 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗