Ísland eftirbátur hinna Norðurlandanna í stuðningi við Úkraínu
RÚV ·
Stuðningur Íslands við Úkraínu er ekki í samræmi við stefnu sem mörkuð var í þingályktunartillögu sem Alþingi samþykkti í lok apríl fyrir tveimur árum. Þar kom fram að stefnan ætti að vera „...hlutfallslega sambærileg að umfangi við það sem önnur ríki Norðurlandanna leggja af mörkum.“ Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Kiel-stofnunarinnar, sem tekur saman gögn um stuðning alþjóðasamfélagsins við Úkraínu, sést að þetta markmið sem Alþingi setti sér í apríl 2024 hefur ekki náðst hingað til. Stuðningur Íslands hefur samkvæmt þessu yfirliti numið 0.47 af vergri landsframleiðslu (VLF), á meðan Danmörk hefur veitt stuðning sem nemur 3.49 prósentum, í Noregi er þetta hlutfall 2.89 prósent, og í Svíþjóð 2.11 prósent. Í Finnlandi er þetta hlutfall 1.51 prósent - meira en þrisvar sinnum hærra en á Íslandi. Taka verður fram að Kiel-stofnunin birtir tölur sem uppfærðar eru með reglulegu millibili og endurspegla því ekki endilega stöðuna eins og hún er í dag. Tölurnar sýna uppsafnaðan stuðning frá febrúar 2022, og miðað er við verga landsframleiðslu árið 2021. Þegar litið er á lista Kiel stofnunarinnar yfir þau ríki sem stutt hafa Úkraínu frá upphafi innrásar Rússa, kemur í ljós að Bandaríkin hafa veitt mestan stuðning, um 115 milljarða evra. Sá stuðningur er hins vegar að langmestu leyti frá því tímabili sem Joe Biden var Bandaríkjaforseti; eftir að Donald Trump tók við embætti hafa Bandaríkin nánast alveg hætt að veita fé til Úkraínu, en veita þó stuðning á annan hátt; meðal annars með því að deila hernaðarlegum upplýsingum og veita aðgang að fjarskiptakerfum á borð við Starlink og Starshield (þó sá aðgangur hafi verið brokkgengur að undanförnu). Eftir valdatöku Trumps hafa Evrópuríki og Evrópusambandið staðið undir lunganum af stuðningi við Úkraínu, meðal annars með því að að kaupa vopn af bandarískum fyrirtækjum í gegnum PURL kerfið sem NATO setti á laggirnar, og senda þau til Úkraínu. Stuðningur íslenskra stjórnvalda Frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa vorið 2022 hafa íslensk
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 7:03:15 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com