Talið að konum hafi verið smyglað inn í Balmoral-kastala í mansalsskyni
RÚV ·
Lögreglurannsókn er hafin í Skotlandi á heimsóknum bandaríska kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein í boði Andrew Mountbatten-Windsor til Balmoral-kastala í Hálöndunum árið 1999. Ghislaine Maxwell, lagskona Epsteins, var með í för. Breskir miðlar segja grun leika á að konum hafi verið smyglað inn í kastalann í mansalsskyni. Talsmaður lögreglu segir upplýsingar varðandi heimsóknina hafa borist en að rannsókn sé mjög skammt á veg komin. „Allar rannsóknir byggja á sönnunargögnum þar sem þarfir þolanda eru í forgrunni. Við myndum aldrei staðfesta nokkur smáatriði í yfirstandandi rannsókn og því væri óviðeigandi að tjá sig frekar um málið,“ segir talsmaður lögreglunnar. Ljósmyndir úr umfangsmiklu Epstein-skjalasafni bandaríska dómsmálaráðuneytisins sýna prinsinn fyrrverandi og Epstein við skotveiðar skammt frá Balmoral. Karl konungur svipti bróður sinn öllum konunglegum titlum seint á síðasta ári vegna náinna tengsla hans við Epstein. Prinsinn fyrrverandi var handtekinn grunaður um brot í opinberu starfi í febrúar, grunaður um að deila viðkvæmum trúnaðarupplýsingum með Epstein meðan hann var viðskiptaerindreki Bretlands. Rannsókn er enn yfirstandandi þótt Mountbatten-Windsor segist ekkert hafa brotið af sér. Viktoría drottning og Albert prins keyptu Balmoral árið 1852 og Elísabet II drottning lést þar haustið 2022.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/30/2026, 12:35:18 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com