Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Neysluvatn á Siglufirði í lagi

RÚV ·

Niðurstaða úr sýnatöku Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra á neysluvatni á Siglufirði sýna að enga E.coli-gerla er að finna lengur. Íbúar hafa verið beðnir um að sjóða neysluvatn sitt frá því 21. október þegar að E.coli-gerlar greindust í því. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook síðu Fjallabyggðar. Grunur er á að vinna við götu í bæjarfélaginu hafi orðið til þess að gerlarnir hafi borist í neysluvatn. Eins og Sigríður Hjaltadóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins sagði við RÚV í dag , þá var mengunin væg og búið var að hreinsa og laga það sem til þurfti. Hún átti von á góðri niðurstöðu úr þessari seinni sýnatöku. Siglfirðingar geta nú drukkið vatnið úr krananum á nýjan leikRÚV / Kristófer Óli Birkisson

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 4:36:30 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗