Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Hasssmyglari handtekinn meðan vígsluathöfn stóð sem hæst

RÚV ·

Hálfsextugur karlmaður var handtekinn í gær meðan á vígsluathöfn nýja alþjóðaflugvallarins við grænlenska bæinn Ilulissat stóð. Danska ríkisútvarpið segir tollverði hafa fundið um hálft kíló af hassi í föggum mannsins sem kom með fyrsta flugi Air Greenland frá Kaupmannahöfn þar sem Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnarinnar, og utanríkisráðherrann Múte B. Egede voru meðal farþega. Tollurinn tilkynnti lögreglu um málið í hádeginu, sem handtók manninn skömmu síðar, meðan vígsluathöfnin stóð sem hæst. Smyglaranum var sleppt skömmu síðar og lögregla segir hans bíða ákæra að rannsókn lokinni. Flugvöllurinn markar tímamót í ferðalögum til Grænlands og opnar nýjar leiðir fyrir ferðalanga sem vilja sækja landið heim. Rúmlega tveggja kílómetra flugbraut leysir 845 metra braut af hólmi sem auðveldar lendingar stærri flugvéla. Fram til þessa hafa ferðalangar frá Norður-Ameríku eða Evrópu þurft að fljúga fyrst til höfuðstaðarins Nuuk eða Kangerlussauq og fara þaðan til Ilulissat með smærri flugvélum. Tvö ár eru síðan nýr alþjóðaflugvöllur var tekinn í notkun í Nuuk.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 2:18:42 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗