Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Þrjú sveitarfélög áminnt sökum slæmrar fjárhagsstöðu

RÚV ·

Þrjú sveitarfélög hafa brotið ákvæði sveitarstjórnarlaga og fengið áminningu frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Samtals sjö sveitarfélög uppfylla ekki ákvæði í frumvarpi að nýjum sveitarstjórnarlögum. Nýr formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að á þessu ári hafi neikvæð áhrif verðbólgu og hárra vaxta mikil áhrif á rekstur sveitarfélaga. Síðasta ár var betra. Þá uppfylltu öll sveitarfélög landsins, 61 talsins, skuldaregluna, það er að segja lögbundið skuldaviðmið . Þá var ekkert sveitarfélag með skuldir sem voru meiri en 150% af tekjum. Fjárhagsstaða þriggja sveitarfélaga er svo slök að þau eru brotleg við ákvæði sveitarstjórnarlaga og hafa fengið áminningu frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Tap varð á rekstri fjögurra annarra sveitarfélaga þrjú síðustu ár samanlagt. Önnur mikilvæg regla er jafnvægisreglan. Samkvæmt henni verður samanlögð rekstrarniðurstaða síðustu þrjú ár að vera jákvæð. Þá er átt við bæði A-hluta, kjarnareksturinn sem fjármagnaður er af skatttekjum, og B-hluta, fyrirtæki í eigu sveitarfélaga og stofnanir, sem reknar eru sjálfstætt. Þessa jafnvægisreglu í sveitarstjórnarlögunum - brutu Seltjarnarnes, Strandabyggð og Vopnafjarðarhreppur. Seltjarnarnesbær er tæpar 343 milljónir króna í mínus. Tap Vopnafjarðarhrepps er rúmar 69 milljónir síðustu þrjú ár samkvæmt ársreikningum 2024 og fimm og fjárhagsáætlun í ár. Hjá Strandabyggð nemur tapið rúmum 53 milljónum króna. Þessi þrjú sveitarfélög gera öll ráð fyrir að ekki verði tap á þessu ári. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga áminnti þessi sveitarfélög í september. Þegar stefnir í óefni hjá sveitarfélögum, sem alls ekki á við í þessu tilfelli, getur nefndin skipað fjárhaldsstjórn og svipt sveitarstjórn fjárráðum. Það gerðist 2010 með Álftaneshrepp. Reykjanesbær stóð tæpt 2016 en þá tókst að semja við kröfuhafa. Í frumvarpi innanríkisráðherra til nýrra sveitarstjórnarlaga sem nú bíður annarrar umræðu á Alþingi verður bætt við reglurnar. Þá verður skylt a

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 8:58:36 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗