Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Stormur um allt land um helgina

RÚV ·

Veðurstofan hefur gefið út viðvaranir vegna hvassviðris, storms og roks um helgina. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Breiðafirði, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og miðhálendinu á morgun. Verst verður veðrið við Breiðafjörð. Þar hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun því þar er útlit fyrir rok, næsta stig fyrir ofan storm. Gul viðvörun hefur verið gefin út á öllu landinu vegna hvassviðris eða storms á sunnudag. Ekki er nóg með að það hvessi um allt land heldur er líka útlit fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands. Viðbúið er að aðstæður til ferðalaga geti versnað því vindur getur farið yfir 40 metra á sekúndu í hviðum.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 11:58:18 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗