Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Býður íbúum Hrafnistu í ferðalag

RÚV ·

„Þetta byrjaði á því að ég las alveg hræðilega bók, vísindaskáldsögu, sem lýsti framtíð þar sem allir voru fastir í einhverjum sýndarveruleika. Ég tók eiginlega þá hugmynd og sneri henni á hvolf og vildi nýta sýndarveruleikann til góðs," segir Svavar sem er starfsmaður Hrafnistu í Hafnarfirði. Hann hefur leitt verkefni þar sem felst í að gefa fólki færi á að ferðast um heiminn með aðstoð sýndarveruleika. Svavar Jónatansson ferðaðist um landið í sumar í þeim tilgangi að gefa íbúum Hrafnistu færi á að ferðast um landið og heiminn. Svavar fór hringinn um landið í sumar og reyndi að ná fjölbreyttu myndefni frá mörgum stöðum. Hann bendir á mikilvægi þess að ungt fólk lifi lífinu meðan það geti; fari og geri hluti í raunheimum, upplifi. Svo kannski seinna meir er hægt að rifja upp minningarnar. „Við notum sýndarveruleikagleraugu til að ferðast um heiminn og núna líka innanlands. Við byrjuðum á að nota efni sem við fengum erlendis frá. Þar eru þekktir ferðamannastaðir sem hægt er að heimsækja. Okkur fannst síðan að það vantaði efni frá Íslandi og það varð til þess að ég fór hringinn og tók upp efni á ótal stöðum. Núna getur okkar fólk farið á síld á Sigló, kíkt niður á Bryggju á Bolungarvík og rölt í Páskahelli á Norðfirði en setið samt í betri stofunni á Hrafnistu.“

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 12:53:47 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗