Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Trump rekur fjölmiðlafulltrúa eftir 5 daga í starfi

RÚV ·

Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur rekið Katie Zacharia, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, úr starfi sínu eftir að hún hafði einungis sinnt því í fimm daga. Það var bandaríski fjölmiðillinn New York Times sem greindi fyrst frá þessu. Fulltrúar Hvíta hússins hafa staðfest þetta við aðra fjölmiðla. Zacharia átti ekki óskabyrjun í starfi þegar hún hélt sinn fyrsta blaðamannafund á þriðjudaginn þar sem hún meðal annars ruglaðist á eiginmanni sínum og Trump forseta. Zacharia, sem tók við af Karoline Leavitt, svaraði aðeins þremur blaðamönnum á fundinum og lauk honum töluvert fyrr en venjan er eða eftir aðeins um stundarfjórðung. Í umfjöllun New York Times segir að Trump hafi stungið upp á því að hún endurhugsaði starf sitt áður en hann rak hana. Hann hafði í fyrstu stutt við hana eftir frumraunina. Samstarfsmenn hennar í Hvíta húsinu voru þó fljótir að byrja að velta því fyrir sér hvort hún myndi endast í starfi eftir fyrsta blaðamannafundinn. Trump hafði ítrekað titlað Zacharia sem lögmann en Zacharia hefur verið sökuð um að segja ekki allan sannleikann í tengslum við feril sinn sem slíkur. Hún segist sjálf hafa starfað um tíma sem lögfræðingur í Kína en komið hefur í ljós að hún fékk aldrei lögmannsréttindi í Bandaríkjunum.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 6:33:49 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗