Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Bubbi gagnrýnir viðskipti Jims Ratcliffes á Íslandi: „Peningar hafa svipuð völd og tónlist“

RÚV ·

„Oftar en ekki hefur sagan sýnt okkur að peningar hafa svipuð völd og tónlist: Þeir fara framhjá skynseminni. Þar af leiðandi bara ef þú ert nógu djöfulli ríkur þá geturðu bara tuddast yfir allt og alla og hægt og rólega þá ertu bara kominn með allar auðlindir þjóðarinnar þess vegna undir þínar hendur,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens sem tjáir sig um enska milljarðamæringinn Jim Ratcliffe og umsvif hans á Íslandi. Ratcliffe er fjórði stærsti jarðeigandi á Íslandi á eftir opinberum aðilum og er með þekktar laxveiðiár eins og Hofsá og Selá á leigu. Bubbi er mikill fluguveiðimaður og hefur veitt á hverju sumri um árabil í Laxá í Aðaldal. Bubbi blandaði sér inn í umræðu um Ratcliffe í byrjun vikunnar eftir að lögfræðingurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Herdís Þorgeirsdóttir tjáði sig um hann í færslu á Facebook . Þar talaði hún meðal annars um hvað Ratcliffe væri stór jarðeigandi á Íslandi. Ratcliffe á 39 jarðir hér á landi, að hluta eða öllu leyti, meðal annars stórar og þekktar eignir eins og Grímsstaði á Fjöllum. Færsla Herdísar vakti mikil viðbrögð og var deilt nærri 350 sinnum af lesendum. Hún fór síðan í viðtal til Páls Magnússonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudaginn. Rætt er við Bubba um umsvif Jims Ratcliffes í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þar er einnig rætt við framkvæmdastjóra fyrirtækisins Six Rivers, Gísla Ásgeirsson, sem svarar fyrir gagnrýni á viðskipti Jims Ratcliffes. Þáttinn má hlusta á hér: Heitar umræður komu upp á samfélagsmiðlum um viðskipti enska fjárfestisins Jims Ratcliffes á Íslandi. Einn af þeim sem tjáði sig um málið var tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens. Talsmaður Ratcliffes svarar gagnrýninni á fjárfestinn. Bubbi vill eignaupptöku og bann með lagasetningu Eitt af því sem er áhugavert í málinu og þessari umræðu er að Jim Ratcliffe hefur ekki keypt neinar jarðir á Íslandi frá árinu 2019 þegar lög sett voru á Alþingi sem takmörkuðu slík jarðakaup. Jim Ratcliffe sagði þá sjálfur í viðtali við Magnús Geir Eyjó

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 7:30:59 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗