Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Áfram engir dýralæknar á stóru svæði

RÚV ·

Lítið hefur breyst í mönnun dýralækna á suðausturhorni landsins. Ekki hefur tekist að manna vaktir frá því 16. ágúst allt frá Kirkjubæjarklaustri að Breiðdalsvík. Stjórnvöld hafa ekkert gert, segir formaður dýralæknafélagsins. „Mér vitanlega er staðan bara nákvæmlega sú sama. Það hefur ekkert þokast að manna þetta svæði. Hafnarsvæði og þar í kring. Þannig það er bara engin dýralæknir á því svæði,“ segir Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands. Ísland aftarlega á merinni Hún lýsti áhyggjum sínum yfir ráðaleysi stjórnvalda við fréttastofu RÚV í ágúst þegar staðan kom upp. Hún segir ekkert hafa gerst síðan. „Það hefur ekkert heyrst frá ráðuneytinu varðandi þennan starfshóp sem var talað um að setja á laggirnar þannig hægt væri að endurskoða lög um dýralækna og þá bakvaktarþjónustu og þjónustu á þessum svæðum.“ Hún segir Ísland aftarlega á merinni í dýravelferð og dýralæknaþjónustu samanborið við önnur Norðurlönd. Dýraeigendur á þessu svæði séu mjög uggandi og þurfi að keyra langar leiðir til þess að fá læknisaðstoð fyrir dýrin sín. „Maður hefur bara heyrt af því að dýraeigendur hafa lent í mjög alvarlegri stöðu að koma dýrunum sínum í hjálp, að fá þjónustu dýralæknis þar sem þarf mjög hröð handtök.“

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 11:17:09 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗