Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Trump segir Zelensky erfiðari að eiga við en Pútín

RÚV ·

Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar árásir Úkraínu á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi „hneisu“. Þetta sagði forsetinn fyrir skemmstu í viðtali hjá fréttamiðlinum Newsmax. Þar sagði hann enn fremur að Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu væri ekki jafn viljugur til að leita leiða til að binda enda á stríðið og Vladimir Pútín Rússlandsforseti. „Ég held að mér þyki Zelensky erfiðari að eiga við en Pútín,“ sagði Trump. Zelensky sagði í viðtali við Piers Morgan í fyrradag að það væri sárt að horfa upp á Donald Trump Bandaríkjaforseta velja sér aðra samherja en Úkraínu. Hann lét ummælin falla eftir að Bandaríkin keyptu rússneska olíu. Þá hefur Zelensky lýst því afdráttarlaust yfir að hann virði ekki kröfu bandarískra stjórnvalda um að Úkraína láti olíuhreinsistöðvar Rússlands í friði þar sem ljóst sé að Rússar hyggist halda áfram árásum á orkuinnviði Úkraínu. Styrkir tengslin við evrópska bandamenn Í skugga versnandi sambands Trumps og Zelenskys hefur Úkraínuforseti fundað með Mark Rutte, aðalritara NATO, í Brussel og öðrum ráðamönnum í Evrópu. Þar nýtur hann áframhaldandi stuðnings og leiðtogar Evrópulanda hafa flykkst að baki Zelenskys eftir nýjustu vendingar í afstöðu Bandaríkjastjórnar. Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir það bráðnauðsynlegt að Úkraínu sé veitt öll nauðsynleg aðstoð við að verja sig og þá hefur Donald Tusk forsætisráðherra Póllands einnig ítrekað stuðning sinn við Úkraínu.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 3:36:22 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗