Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Frestar ekki innleiðingu nýs einkunnakerfis grunnskóla

RÚV ·

Menntamálaráðuneytið hyggst ekki fresta innleiðingu nýs einkunnakerfis sem til stendur að innleiða á næsta ári. Hundrað og sextán umsagnir um breytinguna bárust í samráðsgátt stjórnvalda. Vinna er hafin við að leggja mat á umsagnirnar og aðlaga breytingar eftir þörfum, samkvæmt upplýsingum frá menntamálaráðuneytinu. Sú vinna hefur verið sett í forgang. Grunnskólar hafa til 10. janúar til að birta endurskoðaða skólanámskrá og segir ráðuneytið þann tímaramma raunhæfan. Skólunum verði veittur allur sá stuðningur sem þeir þurfa til að innleiða breytingarnar. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.RÚV / Ragnar Visage

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 5:40:57 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗