Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Sævar og Kastriot fá sjö ár í Dettifossmálinu

RÚV ·

Sævar Hilmarsson og Kastriot Pepaj voru í dag dæmdir í sjö ára fangelsi fyrir aðild sína að Dettifossmálinu. Þetta staðfestir Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Sævars. Alls voru fjórir ákærðir í málinu fyrir innflutning á fjórtán lítrum af amfetamínbasa til landsins með Dettifossi, gámaskipi Eimskips. Tveir menn sem voru starfsmenn Eimskips þegar smyglið kom upp, Magnús Gauti Magnússon og Björgvin Þór Björnsson, hlutu fimm ára dóm fyrir sína aðild að málinu. Dómurinn hefur ekki enn verið birtur og því ekki hægt að segja til um forsendur hans. Sex voru í fyrstu handteknir eftir að lögregla og tollgæsla fóru um borð í Dettifoss í Sundahöfn 6. apríl. Þremur var fljótlega sleppt en hinir þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Sá fjórði var svo hnepptur í varðhald 24. apríl. Amfetamínbasinn var 47-48% að styrkleika og miðað við það má áætla að úr vökvanum hefði mátt framleiða hátt í fimmtíu kíló af hreinu amfetamíni í duftformi. Götuvirði þess hefði því að öllum líkindum numið hundruðum milljóna króna.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 12:24:57 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗