Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Viðbúnaður í París vegna fyrirhugaðra mótmæla

RÚV ·

70 þúsund lögreglumenn og þjóðvarðarliðar hafa verið kallaðir til um helgina í Frakklandi. Frönsk stjórnvöld gera það til að tryggja öryggi íbúa vegna fyrirhugaðra mótmæla og óeirða. Borgarstjórar hafa leyfi til að setja á útgöngubann, þúsundir hafa verið handteknir og Viðskipta- og iðnaðarráð Frakklands telur að tjón geti hlaupið á hundruðum milljóna evra. Louvre-safninu lokað um helgina Louvre-safninu í París verður lokað um helgina ásamt fjölda ferðamannastaða. Verslanir og fyrirtæki hafa sett upp varnir fyrir glugga til að verja húsnæði sitt fyrir skemmdum. Mótmælin byrjuðu í París um miðjan september og breiddust út um Frakkland. Þau brutust út þegar framhaldsskólanemar kröfðust betri aðbúnaðar í skólum en nú snúa mótmælin í auknum mæli gegn stjórnvöldum. Miklar óeirðir brutust út síðustu helgi og skemmdir voru unnar á byggingum. Stéttarfélög, háskólanemar og umhverfissinnar höfðu bæst í hóp mótmælenda ásamt Gulu vestunum, svokölluðu. Gulu vestin hafa boðað til áframhaldandi mótmæla um helgina. Útgöngu- og samkomubann hefur verið sett á í nokkrum hverfum Parísar. Emmanuel Macron, Frakklandsforseti, segir öll mótmæli um helgina verða stöðvuð.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 5:28:50 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗