Rúmlega 60 ára aldursmunur á yngsta og elsta kórfélaganum
RÚV ·
„Þetta eru karlar alveg fram úr firði, alveg fram á innsta bæ hérna í Eyjafirði og alveg út á Dalvík. Allt þarna á milli,“ segir Guðlaugur Viktorsson um fjölbreyttan hóp kórfélaga í Karlakór Eyjafjarðar. Sá yngsti er 21 árs og sá elsti 86 ára. Kórinn heldur upp á 30 ára afmæli í ár og af því tilefni verður blásið til tónleika í Hofi um helgina. Guðlaugur segir kórinn ekki fara troðnar slóðir við val á efnisskrá. Hvorki verður boðið upp á Brennið þið vitar né Ég vil elska mitt land. Þess í stað mega gestir eiga von á að heyra lög norðlenskra hljómsveita sem gerðu garðinn frægan á síðustu öld. Einnig verður boðið upp á klassík, til dæmis verk úr Vesalingunum.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 10:30:59 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com