Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum

RÚV ·

Um níu milljón einnota frauðplastkassar, fullir af ferskum fiski og ís, eru á hverju ári fluttir út frá Íslandi, aðallega með flugi, til viðskiptavina beggja vegna Atlantshafsins. Stærstur hluti þessara afurða fer á markaði í ríkjum Evrópusambandsins. SFS (Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi) telja að verðmæti ferskra sjávarafurða sem þangað fara, hafi verið um 95 milljarðar króna á síðasta ári. En það eru blikur á lofti fyrir þau fyrirtæki sem flytja ferskan fisk til Evrópu, eftir að víðtæk reglugerð Evrópusambandsins um umbúðir (Packaging and Packing Waste Regulation, PPWR) gekk í gildi í haust, og hefur það að markmiði að draga úr umbúðamagni og auka endurnýtingu þeirra. Í þessari reglugerð er meðal annars að finna ákvæði um að eftir rúm þrjú ár, í byrjun árs 2030, skuli minnst 40 prósent af umbúðum fyrir fisk vera endurnýttar (notaðar aftur) og áratug síðar, árið 2040, á þetta hlutfall að vera komið í 70 prósent. Engin leið að hafa uppá kössunum Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum hjá SFS, segir að samtökin geri engar athugasemdir við þau markmið um endurvinnslu sem fram koma í þessari reglugerð - það sé hins vegar annað mál með kröfur um endurnotkun. „Fyrirtæki innan SFS eru að senda ferskan fisk í þessum kössum til kaupenda og þaðan fara þeir út um alla Evrópu, þannig að það er engin leið fyrir útflutningsfyrirtæki hér á landi að hafa upp á kössunum, flytja þá til baka, þrífa þá og endurnýta, fyrir utan að svona umstang væri ekki umhverfisvænt, sérstaklega þegar við erum svo langt frá markaðssvæðum okkar í Evrópu,“ segir Hildur. Hún bendir á að svona kassar séu endurunnir og efnið nýtt í öðrum tilgangi; meðal annars sem einangrun. „Það er erfitt, eða nánast ómögulegt að þrífa þessa kassa þannig að í endurnýtingu standist þeir strangar hreinlætiskröfur. Matvælaöryggi skiptir auðvitað höfuðmáli, og ekki síður að gæði og ferskleiki fisksins haldist á þeirri löngu leið sem er á markaði í Evrópu,“ segir Hildur. Óskað eftir skýringum og mögulegum undanþág

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 1:19:25 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗