Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Fallnir og fámennir eyjamenn unnu FH

RÚV ·

Einn leikur var í dag neðri hluta Bestu deildar karla. ÍBV, sem þegar er fallið, tók á móti FH sem þurfti stig til gulltryggja sæti sitt í deildinni að ári. Það voru heimamenn sem byrjuðu betur og Omar Sowe skoraði fyrsta mark ÍBV á 11. mínútu. Eftir 37 mínútur fækkaði í liði ÍBV þegar Bjarki Björn Gunnarsson var sendur í bað. Þrátt fyrir að vera manni færri bætti ÍBV í forskotið á 73. mínútu þegar Viggó Valgeirsson skoraði. FH svaraði 5 mínútum síðar með marki Kjartans Kára Halldórssonar. Eyjamenn voru hins vegar fljótir að svara að nýju og Arnór Ingi Kristinsson kom þeim í 3-1 þegar tæpar 10 mínútur voru eftir og það urðu úrslitin. Eyjamenn nældu í þrjú stig í dagMummi Lú

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 7:48:11 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗