Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
RÚV ·
Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan um verkefni sín eins og staðan er nú. Sveitarfélög, félag yfirlögregluþjóna og lögreglufélög á landsbyggðinni hafa lýst áhyggjum af fyrirhugaðri sameiningu lögregluembætta. Umsagnarfrestur í samráðsgátt rann út í gær. Skiptar skoðanir á sameiningaráformum Í samráðsgátt bárust athugasemdir frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi, Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi sem öll lýstu áhyggjum af fyrirhugaðri sameiningu. Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa einnig kallað eftir því að lögregluembættið þar verði áfram sjálfstætt. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra leggjast ekki gegn meginmarkmiðum frumvarpsins. Þá bárust í samráðsgátt umsagnir frá Ísafjarðarbæ, Hvalfjarðarsveit, Dalabyggð, Skagafirði, Húnabyggð, Múlaþingi og Stykkishólmi þar sem áhyggjur af aukinni miðstýringu koma fram. Fleiri sveitarfélög sendu sínar umsagnir beint til ráðuneytisins. Athygli vekur að starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra, Félag yfirlögregluþjóna og Lögreglufélög Vesturlands og Vestfjarða gagnrýna áformin. Landssamband lögreglumanna tekur undir nauðsyn þess að fækka embættum í sinni umsögn og lögreglustjórafélag Íslands sömuleiðis. Fjölnir Sæmundsson og Grímur Hergeirsson, formenn síðastnefndu félaganna sátu í stýrihópi á vegum ráðuneytisins ásamt Höllu Bergþóru Björnsdóttur ríkislögreglustjóra og Páli Winkel og Drífu Kristínu Sigurðardóttur fulltrúum dómsmálaráðuneytisins. Stórir kjarnar sogi til sín og minni byggðalög líði fyrir Hafþór Ingi þorgrímsson, formaður lögreglufélags Vesturlands, kannast ekki við ákall um sameiningar lögregluembætta innan lögreglunnar: „Það sem við teljum að beytist einna helst er þessi aukna miðstýring. Við þurfum ekki annað en að horfa til annarra sameininga til dæmis í heilbrigðiskerfinu og barnaverndarumdæmum og slíkt. Við sjáum
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/26/2026, 8:21:40 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com