Nýjar og óseldar íbúðir henta oft ekki í leigu
RÚV ·
Í skýrslu Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) sem birt var í dag kemur fram að kaupsamningar í ágúst hafi ekki verið færri í tólf ár. Um 6.800 íbúðir eru til sölu, um þriðjungi fleiri en um áramótin. Talning HMS í september leiddi í ljós að hátt í 2.000 nýjar íbúðir standa tómar og óseldar. Mjög dýrt er að sitja uppi með óseldar nýjar íbúðir í stórum stíl því ofan á byggingarkostnað bætist fjármagnskostnaður - sem er ærinn. Byggingafélög hafa brugðist við þessu ástandi með ýmsum hætti. Í einhverjum tilfellum hafa nýjar íbúðir sem ekki hafa selst verið boðnar til leigu. Vandinn er að leigumarkaðurinn hefur líka kólnað. Og hvernig gengur þá að leigja þessar íbúðir út? Við ræddum meðal annars um það við Vigni Má Lýðsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Igloo, sem rekur vinsæla leigusíðu, myigloo.is . Ef félagslega kerfið og stóru leigufélögin eru undanskilin, eru um 70% af leigusamningum gerðir með milligöngu félagsins eða um 15.000 samningar á ári, segir Vignir. Félagið býr því yfir mjög góðum upplýsingum um markaðinn. Íbúðum til leigu fjölgaði um 40% Vignir segir að íbúðum sem boðnar eru til leigu á vefnum myigloo.is hafi fjölgað mikið, úr tæplega 800 í september í fyrra í rúmlega 1.100 í september á þessu ári, sem jafngildir um 40% aukningu. Á sama tíma sé mikil eftirspurn eftir leiguhúsnæði. Allt að 3-5 umsækjendur séu um hverja íbúð að meðaltali. Því hefði mátt halda að leiguíbúðir ættu að leigjast út. Vandinn sé að þær margar af þeim íbúðum sem hafa bæst við henti ekki leigumarkaðnum sérlega vel. Hann bendir líka á að margar af þessum eignum sem hafa verið að koma inn á myigloo.is eru frá byggingaverktökum eða fólki sem hefur verið að reyna að selja. Um 25-30% af þeim íbúðum sem eru inni á vefnum í dag, voru á sölu á mbl.is og visir.is fyrir 4-6 vikum. Þegar þær ekki seldust hefðu þær verið boðnar til leigu. Það gangi á hinn bóginn ekkert endilega vel að koma þeim í útleigu. Í mörgum tilfellum sé um að ræða stórar íbúðir. Tveggja herbergja íbúðir séu
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 6:34:30 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com