Siglfirðingar bíða seinni sýnatöku og sjóða neysluvatn á meðan
RÚV ·
E.coli-gerlar greindust í neysluvatni á Siglufirði við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Sýnið var tekið 19. október og niðurstaða fékkst 21. október. Síðan þá hafa íbúar verið beðnir um að sjóða allt neysluvatn. Sigríður Hjaltadóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, sagði í samtali við fréttastofu að þau hefðu fljótlega komist að því hvers vegna og hvaðan sýklarnir greindust. „Það leikur grunur á að þetta hafi komið til vegna vinnu við götu rétt fyrir neðan heilbrigðisstofnunina á svæðinu,“ segir Sigríður. Að hennar sögn er búið að ganga frá svæðinu og sótthreinsa allt sem til þurfti. Nýtt sýni var tekið í gær og búast þau við niðurstöðu úr því á morgun, laugardag. Hún segist vonast til þess að engir E.coli-gerlar greinist í því og að fólk geti hætt að sjóða neysluvatn sitt. Aðspurð um umfang gerlanna sem fundust í fyrsta sýninu segir hún það afskaplega lítið, en þó nóg til þess að gera viðeigandi ráðstafanir.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 2:20:47 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com