Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Þetta er landsliðshópurinn sem Snorri Steinn valdi

RÚV ·

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hefur valið 20 manna leikmannahóp sinn fyrir undankeppni Evrópumótsins í handbolta 2028. Snorri segir að flestallir lykilmenn sínir séu klárir í slaginn. Hann nefndi þó að Þorsteinn Leó Gunnarsson er meiddur. Hann hafði orð á því á blaðamannafundi að baráttan um toppsætið í riðlinum verði líklega við Serbíumenn. Ísland er einnig í riðli með Úkraínu og Eistlandi. Efstu tvö sætin fara beint á EM, auk fjögurra liða með besta árangur í þriðja sæti. Alls eru átta riðlar. Elliði Snær Viðarsson leikur heimaleikinn gegn Úkraínu en fær svo frí vegna persónulegra ástæðna. Jón Bjarni Ólafsson er því valinn í hópinn. Viggó Kristjánsson verður með í hópnum þrátt fyrir að vera í leikbanni vegna brottvísunar í leiknum um bronsið gegn Króatíu á EM 2026. Liðið kemur saman 2. nóvember til æfinga. Snorri mun kalla inn leikmenn úr deildinni hér heima til æfinga í upphafi æfingavikunnar, þar sem leikmenn í atvinnumennsku í Evrópu tínast inn næstu daga. Ísland mætir Úkraínu 4. nóvember hér heima og Eistlandi ytra 8. nóvember. Leikirnir verða sýndir á RÚV. Miðasala er hafin á heimaleikinn.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 12:32:50 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗