Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
RÚV ·
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni. Landsnet hefur sagt markmið framkvæmdarinnar að bæta afhendingaröryggið á byggðalínusvæði og bæta tiltæka afhendingargetu ásamt að stuðla að orkuskiptum í landinu með því að tengja nýja endurnýjanlega orkuframleiðslu við meginflutningskerfið. Línan, sem á að liggja frá Holtavörðuheiði í Hvalfjörð, er 91 km og fer um fjölmargar jarðir í Borgarfirði. Landeigendur stofnuðu hagsmunasamtök gegn framkvæmdunum. Í fyrrahaust breytti Landsnet forgangsröðun framkvæmda og færði Holtavörðuheiðarlínu 3, milli Holtavörðuheiðar og Blönduvirkjunar, framar í röðina til samræmingar við aðrar framkvæmdir. Í janúar stofnuðu landeigendur á fyrirhugaðri línuleið á Norðurlandi vestra einnig hagsmunasamtök. Landsnet ætlar að ræða fyrst við landeigendur í Hvalfjarðarsveit. Í tölvupósti til landeigenda er tekið fram að fulltrúi Landsnets hafi samband við hvern landeiganda til að hefja viðræður vegna viðkomandi jarðar.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 1:52:48 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com