Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Orri Steinn boðaði landsliðsmenn á fund vegna drykkju

RÚV ·

Fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga að nokkrir leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta skelltu í sig nokkrum áfengum drykkjum fram eftir kvöldi eftir leik Íslands og Búlgaríu á Laugardalsvelli fyrir að verða hálfum mánuði. Íslenska liðið átti svo flug til Eistlands daginn eftir þar sem næsti leikur var spilaður. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari segist í viðtali við Vísi hafa verið sár og svekktur með athæfi þessara leikmanna en vill ekki gefa upp hverjir eiga í hlut. Málið sé afgreitt og leikmennirnir hafi sýnt iðrun. Leikmennirnir sýndu iðrun „Meira en iðrun. Þeir voru mjög leiðir yfir þessu. Ég er mjög stoltur af mínum fyrir­liða, Orra Steini, fyrir að hafa kallað leik­manna­hópinn saman og haldið góðan fund. Án aðkomu minnar. Það er mikilvægt að leik­menn fái að pústa. Við stigum skref í að verða al­vöru full­orðin­slið með því að tala hvorn annan til og veita aðhald. Ég var mjög sáttur við það. En á endanum er það þessara leik­manna, sem gerðu þessa hluti, að sjá til þess að þetta gerist ekki aftur,“ segir Arnar í viðtalinu á Vísi. Arnar segir undirbúninginn fyrir útileikinn við Eistland hafa litast af þessari uppákomu þar sem halda þurfti bæði liðsfundi og einstaklingsfundi til að fá botn í málið. „Mönnum líður ekkert vel yfir þessu og það er nógu erfitt að spila fót­bolta­leik, hvað þá lands­leik í nútímaár­ferði og vera ekki með ein­hvern bagga hangandi yfir sér þegar leikurinn hefst. Það var kannski aug­ljóst að við vorum ekki alveg ofan á í þessum leik. Þess vegna sagði ég í viðtali eftir leik, án þess að hafa út­skýrt það, að stigið hafi bara verið nokkuð gott.“ Þá segir Arnar í viðtalinu að leikmennirnir hafi fyrst og fremst brugðist sjálfum sér og liðinu frekar en honum. Arnar segir þessa hegðun þó vera vanvirðingu gagnvart stuðningsmönnum, þjóðinni, leikmönnum, stjórn og þjálfurum.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 9:08:50 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗