Fluttar nauðungarflutningi til Finnmerkur
RÚV ·
Meirihluti þeirra íslensku sakamanna sem sendir voru í afplánun refsidóma til Danmerkur var dæmdur fyrir þjófnað. Um miðja átjándu öld voru mikil harðindi á Íslandi og fólk fór í hrönnum á vergang og neyddist til að sjá sér farborða með því að stela. Tæp 92% þeirra sem fluttir voru til Kaupmannahafnar á árunum 1755-1759 voru dæmdir fyrir þjófnað. Síðari hluti nítjándu aldar var í rauninni nær samfelldur harðindakafli og var ástandið einna verst eftir móðuharðindin. Eiríkur Hermannsson sagnfræðingur fjallar í MA-ritgerð sinni um aðstæður almúgafólks og tíðaranda á tímabilinu 1790–1810. Í þriðja þætti Betrunar á Rás 1 segir Eiríkur frá fjölskyldu sem bjó á Þverá í Fljótshlíð. Einar Ásmundsson og kona hans Ragnhildur Sigurðardóttir bjuggu ásamt tveimur dætrum sínum að Neðri-Þverá í byrjun nítjándu aldar en þau höfðu misst sex börn á sex árum. Árið 1803 var Einar sakaður um þjófnað eftir að hafa gengið bónleiðar til búðar. Ragnhildur gekk með níunda barn þeirra. Að sögn Eiríks var Einar á leið í verið og aðstæður á heimilinu afar erfiðar á þessum tíma. Það verður kveikjan að því að hann lætur freistast til að skera kind og svo kindur, segir Eiríkur. Dæmdur til ævilangrar þrælkunar Einar játar síðar að hafa fyrst skorið kind sem hann fann meðal sinna kinda en var aldrei dæmdur fyrir þjófnaðinn á henni þar sem eigandinn fannst aldrei. Hann var aftur á móti dæmdur fyrir að hafa stolið þremur öðrum. „Hann er sem sagt dæmdur til ævilangrar þrælkunar,“ segir Eiríkur. Réttarhöldin voru að hans sögn merkileg heimild en þau voru haldin í Kirkjulækjarhelli, þingstað Fljótshlíðinga. Vitnin voru öll úr nágrenninu og dómendur góðbændur í nágrenninu, þar á meðal Vigfús Thorarensen sýslumaður sem var nágranni fjölskyldunnar á Þverá. Einar sat fyrst inni í fangelsinu við Arnarhól og var síðan sendur til Kaupmannahafnar þar sem hann sat inni í rúmt ár. Þá eignast hann danskan velgjörðarmann sem fær hann lausan úr fangelsi og kemur honum á skip til Íslands. Þessi velgjörðarmaður var fátæ
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 7:15:22 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com