Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Fimm Norðmenn handteknir fyrir að svíkja fé af NATO

RÚV ·

Fimm menn voru handteknir nærri Björgvin í Noregi á miðvikudaginn og eru ákærðir fyrir fjársvik gagnvart Atlantshafsbandalaginu. Mennirnir starfa allir hjá sama fyrirtækinu. Rannsóknarlögregla efnahagsbrota í Noregi, Økokrim, telur að þeir hafi ofrukkað NATO fyrir þjónustu við herskip í norskum höfnum 2021–2025. Frá þessu greinir norski ríkismiðillinn NRK . Upphæðin sem þeir eru taldir hafa svikið út nemur að minnsta kosti einni milljón evra, sem jafngildir rúmum 136 milljónum íslenskra króna. Hafa rannsakað málið síðan 2023 Innkaupastofnun NATO, NSPA, grunaði að maðkur væri í mysunni og hóf rannsókn á því 2023 hvort fyrirtæki gæti verið að senda þeim ranga reikninga. Rannsóknin leiddi til lögregluaðgerða 2024 og 2025 og mennirnir voru að endingu handteknir á miðvikudaginn eins og fyrr segir. Einn mannanna fimm er eigandi fyrirtækisins og sagður vera vellauðugur maður á sextugsaldri. Hann hefur neitað sök og verjandi hans segir manninn hafa komið af fjöllum þegar hann var handtekinn. Hinir mennirnir eru á fertugs- og fimmtugsaldri og neita einnig sök.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 2:33:55 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗