Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

„Heppni að enginn skyldi kubbast hérna í sundur hreinlega“

RÚV ·

Hjónin Ásta Gunna Kristjánsdóttir og Steinarr Steinarsson eiga hús á Siglufirði og hafa átt það í sextán ár. Húsið skemmdist mikið í óveðrinu á miðvikudaginn. Þau voru stödd á heimili sínu í Hafnarfirði þegar nágrannakona hringdi í þau og sagði þeim að það hefði orðið tjón á húsinu þeirra. „Ég heyri bara, Jesús minn – þetta er hræðilegt,“ segir Ásta. „Og þá segir hún, það er bara allt brotið hérna inni . Bara gæti ekki verið verra ástand. Maður stendur hérna úti og dettur ekki í hug að þetta sé svona slæmt ,“ segir Ásta um símtalið sem hún fékk frá nágrannakonu sinni. Ekki spurt að leikslokum ef þau hefðu verið í húsinu Ljóst er að tjónið er mikið og voru matsmenn frá tryggingarfélögum að meta húsið þegar fréttastofu bar að garði í dag. Ásta telur að ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum ef þau hefðu verið í húsinu þegar hamfarirnar gengu yfir: „Ég bara þakka Guði fyrir. Ef við hefðum verið hérna þá hefðum við annaðhvort verið uppi í rúmi eða ég að elda. Maður hefði sjálfsagt ekkert lifað það af. Það er bara þannig. Þú getur ímyndað þér ef einhver hefði orðið fyrir þessari plötu, hann hefði ekki lifað það af. Að enginn skyldi hafa kubbast hérna í sundur hreinlega.“ Með bjartsýnina að leiðarljósi Þrátt fyrir áfallið eru þau hjónin bjartsýn og segja þetta bara eitt verkefni sem þau fá í fangið. Miklar framkvæmdir og hreinsunarstarf eru fram undan. Þau eru komin með verktaka og vilyrði frá tryggingarfélaginu um að fá þetta greitt. „Fyrsta sem ég hugsaði í morgun, er þetta er búið. Fólk sem býr í stríðshrjáðum löndum má alltaf eiga von á þessu. Þetta er aldrei búið. Við erum bara heppin. Lífið er bara alls konar og ég hef ekki hitt neinn sem hefur ekki lent í neinu. “ Hjón á Siglufirði komu að húsi sínu stórskemmdu eftir óveðrið sem gekk yfir á miðvikudag. Þau segja að ef þau hefðu legið í svefnherberginu þegar hvellurinn gekk yfir hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 6:12:01 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗