Staðfesta viðræður um vopnahlé í Oleshky
RÚV ·
Stjórnvöld í Úkraínu og í Rússlandi hafa staðfest að unnið sé að vopnahléi í bænum Oleshky í suðurhluta Úkraínu. Hvíta húsið lýsti því óvænt yfir í dag að Melania Trump forsetafrú hefði haft milligöngu um vopnahlé. Helsti samningamaður Úkraínumanna segir í færslu á Telegram að vopnahléið taki brátt gildi. Stefnt verði að því að flytja fólk á brott á öruggan hátt. Rússar hertóku bæinn 2022 og hafa ekki hleypt matarsendingum þangað síðan í vor. Fólk skortir mat, lyf og aðrar nauðsynjar og er farið að svelta. Stjórnvöld í Rússlandi hafa einnig staðfest vopnahléið og að það eigi að hefjast 27. október. Vegurinn frá Oleshky.AP/Ukrainian 34th Separate Marine Brigade "Borysfen" / Ukrainian 34th Separate Marine Brigade "Borysfen"
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 4:30:11 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com