Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
RÚV ·
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki ekki að nafnvirði á tólf mánaða tímabili miðað við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Áformin voru birt í Samráðsgátt stjórnvalda í byrjun mánaðarins. Lögin eiga að taka gildi 1. janúar 2027. Samráði lauk fyrir helgi. Alls bárust 16 umsagnir um málið. SA leggjast gegn fyrirhugaðri styttingu Meðal þeirra sem skiluðu umsögn voru Samtök atvinnulífsins sem leggjast gegn áformum ríkisstjórnarinnar. SA segja áformin meðal annars fela í sér takmörkun á samningsfrelsi og valkostum heimila. Þá þrengi hærri greiðslubyrði svigrúm heimila til að byggja upp varasjóð og mæta áföllum. SA séu þó ekki andvíg því markmiði að draga almennt úr vægi verðtryggingar í efnahagslífinu en telji að leiðin liggi fyrst og fremst í auknum efnahagslegum stöðugleika. Samtökin hvetja stjórnvöld til að falla frá áformunum og beina þess í stað kröftum sínum að málum sem eru til þess fallin að auka efnahagslegan stöðugleika og taka tillit til ólíkra þarfa heimila. Áformin bitni á þeim sem eigi að njóta ávinningsins Már Wolfgang Mixa, dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, leggst einnig gegn áformunum og telur upp sjö ástæður í mjög ítarlegri umsögn. Hann bendir meðal annars á að verðtryggð lán séu stór ástæða þess að óvenju hátt hlutfall Íslendinga búi í eigin húsnæði. Lág greiðslubyrði í upphafi geri mörgum kleift að kaupa sem annars kæmust ekki inn á markaðinn. Rökstuðningurinn fyrir 25 árum byggir á því að verðbólga verði 2,5%. Frá aldamótum hefur hún aðeins fimm ár verið við eða undir því marki. Talan 25 ár er því valin út frá forsendu sem stenst ekki. Byrðin lendi mest á tekjulægri og skuldsettari heimilum, einmitt þeim sem ráðuneytið segir að eigi að njóta ávinningsins. Fullyrðingin um að verðtrygging veiki miðlun peningastefnunnar stenst ekki greiningu Seðlabankans. Áformin byggja á þeim misskilningi að verðbætur séu kostnaður sem leggist
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/26/2026, 6:07:14 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com