„Ég verð bara að selja þetta dót því ég fæ 39 þúsund krónur í lífeyrissjóðsgreiðslur“
RÚV ·
Brynhildur Þorgeirsdóttir, myndhöggvari og náttúruafl, opnaði heimildasýningu á Korpúlfsstöðum um helgina þar sem gefur að líta höggmyndir frá löngum ferli. Þar eru ekki bara listaverk því Brynhildur hefur í raun fært alla vinnustofuna sína inn á Korpúlfsstaði. Þar kynnir hún líka til leiks nýtt kaupsamningsfyrirkomulag undir slagorðinu: „Buy my art before I die“. „Þegar maður er orðinn 71 árs fyrirvinnulaus myndhöggvari, sem fær tæpar 39 þúsund krónur frá lífeyrissjóðnum á mánuði og á fullt af listaverkum á lager, þá þarf að grípa til einhverra ráða,“ segir listamaðurinn. Brynhildur vinnur að nýjum verkum meðan á sýningunni stendur og býður gestum upp á samtal. Svo er einnig hægt að tylla sér á sófa og horfa á heimildarmynd um listakonuna eða glugga í gömlum bæklingum og ljósmyndum. Hildigunnur Birgisdóttir er Brynhildi innan handar, þó ekki sem sýningarstjóri sýningarinnar heldur sem þriðja augað, því samkvæmt Brynhildi snýst þetta ekki um stjórn heldur traust. „Hún skilur manna best bilið á milli hlutanna. Hún setur alltaf allt á hárrétta staði,“ segir Brynhildur um Hildigunni. Brynhildur Þorgeirsdóttir stendur fyrir strangheiðarlegri sölusýningu á Korpúlfsstöðum. Hún flutti vinnustofuna sína þangað á dögunum og þar geta gestir kynnst höfundarverki myndhöggvarans. Með tvö stálhné Brynhildur hefur sýnt reglulega hér á landi síðan hún flutti heim frá New York 1990 og haldið einkasýningu þriðja hvert ár. „Fyrir nokkrum árum var ég búin að klára risastórt verkefni og sjóðurinn minn orðinn nokkuð stór. Þá ákvað ég að hætta að kenna og hætta að kokka því það er illa borgað og tekur rosalega mikinn tíma og ég get ekki labbað svona mikið, út af fótunum á mér, ég er með tvö stálhné. Þannig að ég ákvað að nú ætla ég bara 100% á vinnustofuna og nota allt þetta energí sem ég nota í kennsluna og kokkamennskuna í að afla mér verkefna og vera á vinnustofunni.“ Hún á helling af verkum á vinnustofunni og fór að velta því fyrir sér hvað hún ætti að gera við þau, ekki síst eftir að
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 7:00:59 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com