Matthías lætur af störfum hjá Val
RÚV ·
Knattspyrnudeild Vals tilkynnti í kvöld að Matthías Guðmundsson myndi láta af störfum sem þjálfari kvennaliðs félagsins. Valur féll úr Bestu deildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins í haust. Í yfirlýsingu á Facebook-síðu knattspyrnudeildar segir að tímabilið hafi verið vonbrigði og að úrslitin hafi ekki fallið með liðinu, en að Matthías hafi lagt allt sitt í starfið. „Matti er góður og gegn Valsmaður og einn af okkar bestu sonum. Knattspyrnudeild Vals þakkar honum innilega fyrir hans störf og óskar honum alls hins besta,“ segir ennfremur. Ekkert er sagt um arftaka Matthíasar að sinni. Matthías Guðmundsson verður ekki áfram þjálfari kvennaliðs Vals í fótbolta.Mummi Lú
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 6:45:03 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com