Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Sömdu sviðsverk innblásið af 200 postulínshundum sem þær erfðu frá ömmu

RÚV ·

Hvað gerist þegar tveir listamenn erfa 200 púðluhunda úr postulíni? Jú, þá verður til sviðslistaverk. Guðrún Sóley leit inn í Tjarnarbíó til að kynna sér Púðluhundasafnið. Höfundar verksins og flytjendur eru systurnar Olga Sonja Thorarensen og Salóme Sól Norðkvist. „Ég sem sagt erfi þetta púðlusafn ömmu minnar þegar hún deyr vegna þess að ég bað um það sjálf þegar ég var barn,“ segir Salóme um kveikjuna að hugmyndinni. „Ég hugsaði mikið um hvað ég gæti gert við þær því mér finnst algjör synd að þær lægju í kössum inni í geymslu hjá mér.“ „Mér fannst þetta gullið tækifæri til að sameina krafta okkar loksins, fyrst við erum nú báðar í sviðslistum,“ segir Salóme.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 2:00:02 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗