Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Krefst viðbragða við sambandsleysi á Vestfjörðum

RÚV ·

Fjórðungsþing Vestfirðinga lýsir þungum áhyggjum af ófullnægjandi fjarskiptasambandi á Vestfjörðum. Víða sé farsíma- og gagnasamband ótryggt eða ekkert og dæmi séu um að staðan hafi versnað eftir lokun 3G-þjónustu. Í ályktun þingsins segir að þrátt fyrir ítrekuð vilyrði um úrbætur og fyrri ályktanir hafi lítið áunnist. Sambandsleysi sé alvarlegt öryggismál, einkum ef kalla þurfi eftir neyðaraðstoð, og geti tafið viðbrögð við slysum og öðrum neyðartilvikum. Þingið krefst þess að stjórnvöld bregðist við án frekari tafar við stöðunni, tryggi fullnægjandi farsíma- og neyðarsamband á Vestfjörðum og leggi fram skýra og tímasetta áætlun um nauðsynlegar úrbætur.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 11:06:21 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗