Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

„Ef ég hefði vitað hvernig heimurinn liti út í dag, hefði ég ekki eignast börn“

RÚV ·

Radchenko er einn fremsti sagnfræðingur heims um kalda stríðið en líka utanríkisstefnu Rússlands og Kína. Hann hélt tölu á friðarráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Hann hefur flókinn og áhugaverðan bakgrunn. Radchenko er sonur úkraínskra foreldra sem flúðu hungursneyðina miklu í Úkraínu 1932 til rússnesku eyjunnar Sakhalin. Radchenko flutti að heiman fimmtán ára til Texas í Bandaríkjunum. Síðan þá hefur hann búið og starfað sem sagnfræðiprófessor víða um heim og lengi framan af var hann með tvöfaldan ríkisborgararétt, annars vegar í Rússlandi og hins vegar Bretlandi. „Þessi samtengdi heimur minn splundraðist þann 24. febrúar 2022 þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Við það varð ég fyrir áfalli, sem varði í nokkrar vikur, og á margvíslegan hátt breytti það mér og endurmótaði mig og ég skildi að stundum verður maður að taka afstöðu. Í mínu tilviki taldi ég að það krefðist þess að ég segði skilið við tengsl mín við Rússland, við rússneska vegabréfið mitt.“ Sergey Radchenko, sagnfræðiprófessor við Johns Hopkins-háskóla, afsalaði sér rússneskum ríkisborgarétti eftir allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu. Hann óttast að framtíðarkynslóðir muni erfa miklu flóknari og erfiðari heim en þær sem á undan komu. Langaði að kveikja í vegabréfinu sínu Hann segir sitt gamla föðurland ekki skilgreina sig, fræðirannsóknir hans geri það miklu heldur. Radchenko skrifaði ítarlega grein í The Guardian um ferlið sem fór í hönd þegar hann afsalaði sér rússneskum ríkisborgararétti. Sendiráðið gerði þér ekki auðvelt fyrir. Þú skrifaðir grein þar sem þú sagðir að þig hefði á einum tímapunkti langað að kveikja í vegabréfinu þínu. „Hvenær hafa Rússar einhvern tímann gert eitthvað auðvelt? Þeir auðvelda aldrei hlutina, svo að auðvitað gera þeir þá erfiða.“ Honum hafi tekist ætlunarverk sitt að lokum og hann hafi náð að afsala sér rússneskum ríkisborgararétti. Radchenko fannst mikilvægt að gera það því málið varðaði sjálfsmynd hans. Þú lýsir í þessari grein í The Guardian áfallinu sem þ

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 2:25:55 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗