Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Gætu fengið að leggja hald á bíla vegna utanvegaaksturs

RÚV ·

Lögregla fær heimild til að leggja tímabundið hald á bíla sem hafa verið notaðir við utanvegaakstur ef frumvarp sem lagt hefur verið fram til kynningar í samráðsgátt verður að lögum. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, leggur til breytingar á náttúruverndarlögum um viðbrögð við utanvegaakstri, um landtöku farþega á friðlýstum svæðum og uppbyggingu innviða. Í frumvarpsdrögunum eru lagðar til tvenns konar aðgerðir gegn utanvegaakstri. Annars vegar að Náttúruverndarstofnun geti látið lagfæra skemmdir vegna utanvegaaksturs á kostnað bílstjórans og hins vegar að lögregla geti lagt hald á bílinn tímabundið. Hugmyndin að baki því að leggja hald á bíla er tvíþætt. Annars vegar að lögregla geti með þessum hætti stöðvað utanvegaakstur ef bílstjórinn hefur hunsað fyrirmæli lögreglu, landvarðar eða starfsmanna Náttúruverndarstofu og þjóðgarða. Hins vegar að koma í veg fyrir frekari náttúruspjöll ef bílstjórinn hefur þegar valdið tjóni með utanvegaakstri. Í drögunum er líka að finna ákvæði um að skemmtiferða- og leiðangursskip megi ekki setja farþega í land á friðlýstum svæðum nema með leyfi Náttúruverndarstofnunar. Sama gildir um aðra atvinnustarfsemi. Frá þessu verða þó undanþágur vegna björgunarstarfa, löggæslu, vísindarannsókna sem hafa hlotið tilskilin leyfi og annarra brýnna og lögmætra ástæðna.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 10:29:33 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗