Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Karen leitar ástarinnar í Fleiri pabbahelgum

RÚV ·

Karen er orðin fullsödd af Tinder og leitar að hinni einu sönnu ást í framhaldsþáttaröðinni Fleiri pabbahelgar sem hefur göngu sína á RÚV á sunnudagskvöld. Þættirnir eru framhald af seríunni Pabbahelgar sem kom út árið 2019. Karen hefur verið einstæð í fimm ár og er orðin veraldarvön á Tinder. Í seríunni leitar hún sér að hinni einu sönnu klisjukenndu ást, sem reynist flóknara verkefni en á horfist. Nanna Kristín Magnúsdóttir leikstýrir þáttaröðinni og fer sömuleiðis með aðalhlutverk Karenar. Sveinn Ólafur Gunnarsson fer með hlutverk Matta, barnsföður Karenar. Serían var frumsýnd í Bíó Paradís á þriðjudaginn. Í seríunni hefur Karen leitina að sjálfsástinni en klisjan um að setja sjálfa sig í fyrsta sæti reynist flóknari en sýndist í fyrstu. Þáttaröðin er sex þátta sería og verða þættirnir á dagskrá RÚV á sunnudagskvöldum. Hægt er að nálgast fyrstu seríu Pabbahelga í spilara RÚV.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 9:00:22 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗