Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Mikill áhugi á rjúpnaveiði og rjúpnastofninn sá sterkasti í áratugi

RÚV ·

Tugir byssueigenda hafa sótt veiðinámskeið sem Skotveiðifélag Íslands, SKOTVÍS, hefur haldið undanfarnar vikur. Áki Ármann Jónsson, formaður SKOTVÍS, segir það merki um áhugann og stemninguna hjá rjúpnaskyttum fyrir veiðitímabilinu sem hófst í morgun. Námskeiðin eru bæði ætluð nýliðum sem fá skotvopnaréttindi í fyrsta sinn og byssueigendum sem sækja sér veiðikort sem allir þurfa að hafa til að mega ganga til veiða á Íslandi. „Það er um 20% aukning á námskeiðinu frá því í fyrra og við teljum það náttúrulega bara vera af því að rjúpnastofninn er mjög stór í ár og menn eru spenntir að fara. Og eins og Íslendinga er siður þá gera þeir allt á síðustu stundu þannig að menn eru að drífa sig að klára þetta til að komast á veiðar.“ Konum fer fjölgandi í hópi veiðimanna en yngsta fólkið sést ekki Það er hending, segir Áki, að á þessum námskeiðum sjáist fólk um og yfir tvítugt. Í þeim aldurshópi sé afar lítill áhugi fyrir skotveiði. Þeir sem ganga til rjúpnaveiða núorðið eru mun færri en fyrir tveimur til þremur áratugum. „Þegar ég byrjaði í þessu fyrir 20–30 árum síðan þá voru svona 600–700 manns að fara í gegnum kerfið á hverju ári. Í fyrra voru það 250 og kannski verða 300 núna í ár og þegar ég byrjaði í þessu þá voru kannski að koma inn tvítugir strákar sem voru búnir að bíða í þrjú ár eftir að komast á námskeið til að geta farið að veiða rjúpu löglega. En núna er þetta meira svona félagsþrýstingur frá ættingjum, vinnufélögum eða öðrum félögum. Þannig að fólk er kannski svona um þrítugt, fertugt að koma inn núna inn á námskeiðin, í meira mæli. Og það eru náttúrulega meira konur líka núna, það eru um 20% konur sem koma inn.“ Borgarsamfélagið og breyttir siðir hjá ungu fólki séu ástæðan fyrir þessu áhugaleysi á skotveiði. Tíðarandinn í dag sé allt annar en áður. „Við erum að færast úr sveit í borg þannig að þessi tengsl við náttúruna eru að rofna. Þannig að menn voru aldir upp kannski við það úti í sveitinni að fara með foreldrum sínum eða ættingjum á veiðar frá blautu barns

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 1:48:33 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗