Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Styrkja fjarskipti á fimm stöðum á landinu

RÚV ·

Byggja á upp og styrkja fjarskiptainnviði á fimm stöðum á landinu. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði tvo samninga þess efnis í dag. Annar samningurinn er við sveitarfélagið Borgarbyggð um bætta farnetsþjónustu í sveitarfélaginu. Hinn er við Öryggisfjarskipti og snýr að eflingu fjarskiptainnviða á fjórum svæðum á Vestfjörðum, Vesturlandi og Austurlandi. „Verkefnin miða öll að því að bæta útbreiðslu farnets og auka öryggi fjarskipta en framlög ráðuneytisins til þeirra nema samtals 37,1 milljón kr. Undirbúningur er hafinn og stefnt að verklokum vorið 2027,“ segir í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu. Á Mýrum á að reisa nýjan sendastað nærri Staðarhrauni. Þetta er gert til að bæta almenna farnetsþjónustu og möguleika á neyðarsímtölum sunnan Ljósufjalla við Grjótárvatn og í Hítardal. Þá á að styrkja fjarskiptainnviði á Dynjandisheiði, við Látrabjarg, við Glym í Hvalfirði og í Mjóafirði. „Verkefnin miða að því að styrkja fjarskiptainnviði, draga úr hættu á alvarlegum þjónustutruflunum og auka útbreiðslu farnets á stofnvegum og fjölförnum ferðamannastöðum,“ segir í tilkynningu.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 6:12:44 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗