Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Mettekjur þrátt fyrir verkfall

RÚV ·

Flugvirkjaverkfallið í síðasta mánuði kostaði Icelandair um það bil hálfan milljarð króna. Þetta kemur fram í kynningu flugfélagsins á afkomu fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi. Icelandair átti sinn besta þriðja ársfjórðung frá upphafi þegar litið er til tekna. Þær voru tæpir 80 milljarðar króna og jukust um 12 prósent milli ára. Hagnaðurinn nam tæplega 12 milljörðum króna. Forsvarsmenn Icelandair sögðu í kynningunni að undirliggjandi frammistaða væri betri en tölurnar sýndu. Þeir vísuðu meðal annars til þess að eldsneytisverð er tvöfalt dýrara en það var að meðaltali 2008 til 2025 og þess að krónan hefði hækkað um 15 prósent frá fyrsta ársfjórðungi 2025.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 11:00:46 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗