Þjálfari Bayern hneig niður og fluttur með hraði á sjúkrahús
RÚV ·
Vincent Kompany, þjálfari karlaliðs Bayern Munchen í fótbolta, var staddur á æfingasvæði liðsins þegar hann hneig niður. Þyrla kom á vettvang en hann var fluttur af svæðinu í sjúkrabíl. Þýskir miðlar hafa fjallað um atvikið og hann er sagður hafa verið að horfa á æfingu U-23 liðs félagsins þegar atvikið átti sér stað. Fyrr í dag stýrði hann aðalliði félagsins á æfingu. Bayern mætti Arsenal í Meistaradeildinni í vikunni. Kompany hafði verið að glíma við veirusýkingu og tjáði sig um veikindin eftir leikinn og sagðist ekki hafa hlustað nægilega vel á líkamann. „Sem þjálfari þá viltu gera allt og halda utan um allt. Ég fékk ansi slæma veirusýkingu og hlustaði auðvitað ekki á líkamann en á ákveðnum tímapunkti segir hann stopp.“
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 4:49:54 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com