Einn á sjúkrahús eftir umferðarslys
RÚV ·
Einn var fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt umferðarslys sem varð á Hellisheiði í kvöld. Heiðin var lokuð í báðar áttir í nokkrar klukkustundir en búið er að opna fyrir umferð. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segir tildrög slyssins ókunn. Stuttu eftir slysið varð þriggja bíla árekstur á sama vegkafla en slys voru minniháttar. Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang slyssins. Þetta staðfestir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Magnús segir að slysið hafi orðið um tíuleytið í kvöld og var einn fluttur alvarlega slasaður til aðhlynningar á sjúkrahús. Heiðin var lokuð í nokkrar klukkustundir á meðan unnið var að því að tryggja vettvang. Í Facebook-tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi eru vegfarendur beðnir um að sýna ýtrustu varúð í hálkunni. Hægt er að fylgjast með færð og lokun vega á vef Vegagerðarinnar Umferðin.is. Fréttin var uppfærð eftir að búið var að opna fyrir umferð um Hellisheiði að nýju.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 10:59:50 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com