Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

„Ég hefði auðvitað kosið að þeir væru skuldbundnir sínum flokki“

RÚV ·

Forsætisráðherra segir leitt að sjá á eftir Jóni Gnarr úr meirihlutanum en að brotthvarf hans hafi engin áhrif á samstarf ríkisstjórnarflokkanna. Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar en styður ríkisstjórnina. „Mér finnst auðvitað leiðinlegt að sjá á eftir Jóni. Hann var góður liðsfélagi,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Jón Gnarr er annar þingmaðurinn sem segir sig úr þingflokki í ríkisstjórn Kristrúnar. Guðmundur Ingi Kristinsson sagði sig úr Flokki fólksins fyrr á árinu. Kristrún segir brotthvarf Jóns ekki hafa áhrif á samstarf ríkisstjórnarflokkanna. „Ég ætla ekki að gera lítið úr því að það er leitt að sjá á eftir fólki. Báðir þessir aðilar, Guðmundur Ingi og Jón Gnarr, voru aðilar sem mér þykir vænt um og þótti gott að vinna með og mun áfram þykja gott að vinna með,“ segir Kristrún. „Þótt það virðist kannski ekki stóra fréttin akkúrat núna þá skiptir það máli að báðir þessir aðilar segjast styðja ríkisstjórnina þannig að ríkisstjórnin er enn með 36 manna meirihluta.“ Kristrún segir að hún hefði kosið að þeir væru skuldbundnir sínum flokkum. „En það er ákveðin dýnamík þarna sem hefur gert það að verkum að þeir vilja frekar haga sinni þingmennsku með þessum hætti og ég verð bara að bera virðingu fyrir því.“ Hægt er að horfa á viðtal Ölmu Ómarsdóttur fréttamanns við Kristrúnu í heild í spilaranum. Forsætisráðherra harmar brotthvarf Jóns Gnarr úr ríkisstjórnarflokkunum en segir það ekki hafa áhrif á samstarfið. Hún segist virða ákvörðun hans þótt hún hefði kosið að hann væri skuldbundinn Viðreisn.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 2:47:32 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗