Utanríkisráðherra Kanada segir stórveldin á undanhaldi
RÚV ·
Ræða Mark Carneys í Davos á fundi World Economic Forum í janúar markaði alger tímamót í alþjóðakerfinu. Boðskapur Carneys var sá að meðalstór ríki ættu að tengjast betur og fylla með því í það valdatóm sem væri að myndast í heiminum. Um leið hefur Kanada átt í hörðum deilum við sína nánustu nágranna, Bandaríkin, á viðskiptasviðinu allt frá því Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna í ársbyrjun 2025. Miklar sviptingar hafa reyndar orðið í tollamálunum og skeyti gengið á víxl. Deilan hefur harðnað frekar en hitt og flestar boðaðar tollahækkanir tekið gildi. Utanríkisstefna Kanada hefur tekið miklum breytingum á þessu ári í kjölfar deilna við Bandaríkin og umróts í alþjóðamálum. Bandaríkin hafa lagt 50% tolla á stóran hluta kanadísks útflutnings, Kanada hefur svarað með sams konar gagnatollum og engin lausn virðist í sjónmáli eftir að samningaviðræður landanna stöðvuðust í ágúst. Í yfirlýsingu frá fjármálaráðuneyti Kanada í ágúst kom m.a. fram að í kjölfar ákvörðunar Bandaríkjanna um að leggja 50% toll á kanadískar vörur að verðmæti 27,6 milljarða kanadadala frá og með 22. ágúst myndi Kanada svara í sömu mynt og freista þess að verja þær greinar sem verst verða fyrir barðinu á tollum í Bandaríkjunum, þar á meðal stál- og málmiðnað, mjólkuriðnað, pappírs- og trjákvoðuiðnað auk framleiðslugreina á tæknisviðinu. Stjórnvöld í Kanada hafa lagt mikla áherslu á að ný stefna þeirra í utanríkis- og utanríkisviðskiptamálum snúist ekki síst um sjálfstæði, fullveldi og framtíð Kanada í samfélagi þjóðanna. Þessar áherslur vekja athygli vegna þess að Kanada telst eitt auðugasta ríki heims, situr oftast nær í 20.-25. sæti í heiminum þegar mæld er landsframleiðsla á mann og er í fremstu röð þegar kemur að lífsgæðum, menntun og almennri veldsæld. Kanada á þó nokkuð í land þegar miðað er við allra ríkustu smáríkin eins og Lúxemborg, Sviss, Noreg eða Ísland. Kanada hefur sömuleiðis haft nokkuð sterka stöðu í alþjóðamálum og hefur veruleg áhrif meðal annars með þátttöku
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 1:50:03 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com