Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun
RÚV ·
Fálkinn og maðurinn eru verstu óvinir rjúpunnar samkvæmt kvæði Jónasar Hallgrímssonar, Óhræsið.RÚV / Einar Rafnsson Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun í öllum landshlutum. Veiðar eru leyfðar frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum í tæpan mánuð eða allt til jóla þar sem tímabilið er lengst. Á Suðurlandi og Norðvesturlandi má veiða til 17. nóvember, á Vestfjörðum viku lengur, til 1. desember á Vesturlandi og Norðvesturlandi og til 22. desember á Austurlandi. Þar þykir rjúpnastofninn sterkastur. Veiðar eru bannaðar á Reykjanesskaga að Hvalfirði, Þingvallavatni og Ölfusá. Veðurspáin er góð á morgun og ætla má að margir byssuleyfishafar drífi sig af stað. Enginn má hamstra því bannað er að selja rjúpu.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 5:32:07 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com