Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Akureyringar etja kappi við Skagamenn

RÚV ·

Akureyri og Akranes mætast í næstu viðureign Landsleikanna á morgun. Það voru Keflvíkingar sem sigruðu Grindvíkinga í seinasta þætti og eru því Keflvíkingar komnir áfram í átta liða úrslit. Það voru þau Sólborg Guðbrandsdóttir, Rúnar Ingi Hannah og Baldur Þórir Guðmundsson sem lönduðu sigrinum fyrir Keflavík. Keppendur frá Grindavík voru þau Pétur Markan, Berta Dröfn Ómarsdóttir og Ólafur Ólafsson. Á laugardag mætir svo lið Akureyrar Skagamönnum. Þau Óðinn Svan Óðinsson, Eva Björk Benediktsdóttir og Pétur Már Guðmundsson keppa fyrir hönd Akureyrar. Keppendur frá Akranesi eru svo þau Eva Laufey Kjaran, Alexander Aron Guðjónsson og Bryndís Böðvarsdóttir. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast fyrri þætti. Fjórði þáttur Landsleikanna er á dagskrá á laugardaginn. Í síðasta þættir voru það Keflvíkingar sem sigruðu Grindvíkinga. Á morgun mæta Akureyringar og Skagamönnum.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 2:00:59 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗