Veikir og dauðir fuglar voru með fuglainflúensu
RÚV ·
Fjöldi dauðra og veikra fugla hefur fundist víða um land síðustu vikurnar. Ekki er vitað hversu mikil útbreiðslan er. Búið er að greina fuglainflúensu í villtum fuglum á Norðurlandi, Suðvesturlandi og Suðausturlandi. Sýni hafa verið tekin úr dauðum og veikum fuglum úr öðrum landshlutum en beðið er niðurstöðu úr greiningum úr þeim. Skæð afbrigði fuglainflúensu greindust í fyrrahaust og aftur í vor. Nú greinist fuglainflúensa á ný. Afbrigðin sem hafa greinst eru H5N5 og H5N1. Hettumáfur, skúmur, tveir svartbakar og sílamáfur sem fundust á Blönduósi, Skagaströnd og við Sauðárkrók í september greindust með fuglainflúensu. Það voru fyrstu jákvæðu sýnin í haust. Síðan hafa fleiri ábendingar borist og búið er að greina smit í fuglum á Húsavík og við Jökulsárón. Átta máfar sem fundust dauðir í Sandgerði voru með H5N5.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 8:35:28 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com