Verk eftir Monet seldist fyrir metverð á uppboði
RÚV ·
Verk eftir Monet seljast gjarnan dýrum dómi á uppboðum. Hér er verkið Gular og fjólubláar liljur á listasafninu Musee Marmottan Monet í París, en þetta er annað málverk eftir Monet með liljum en það sem seldist á uppboði í gær.EPA / Mohammed Badra Olíumálverkið Liljur eða Íris, eftir franska impressjónistann Claude Monet, seldist fyrir 50 milljónir evra í París í Frakklandi í gær. Verkið er þar með dýrasta listaverk sem selt hefur verið á uppboði í landinu. Verkið er 1,6 metrar á hæð og 1,8 metrar á breidd og hefur aldrei verið sýnt opinberlega. Monet málaði verkið skömmu áður en hann lést, 5. desember 1926, eða fyrir tæpum hundrað árum. Verkið var í eigu Schlumberger-fjölskyldunnar og hefur hangið uppi á höfðingjasetri fjölskyldunnar þar til nú. Á vefsíðu uppboðshaldara má lesa meira um Liljur og uppruna þess.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 1:16:35 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com