Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Grænland hyggst banna námugröft á djúpsævi

RÚV ·

Grænlandsþing hefur einróma samþykkt þingsályktunartillögu um að grænlenska ríkisstjórnin skuli útfæra bann við námugreftri á djúpsævi. Þetta kemur fram á heimasíðu grænlenska þingsins. Frá Nuuk, höfuðborg Grænlands.RÚV / Víðir Hólm Ólafsson Lagt er til að bannið gildi til 31. desember 2029 með möguleika á framlengingu annað hvert ár. Ríkisstjórnin hefur jafnframt tilkynnt að ákveðið hafi verið að frumvarp um bannið verði lagt fram á vorþinginu 2027. Athygli vekur að tillagan var lögð fram degi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf út yfirlýsingu um að umfangsmikil leit að olíu, gasi og málmum væri hafin á Grænlandi. Vert er að nefna að hann minntist ekki sérstaklega á námugröft á hafsbotni.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 6:41:40 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗