Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Úrskurðað endanlega um gufubaðið við Ægisíðu

RÚV ·

Gestur í gufubaði við Ægisíðu.RÚV / Ragnar Visage Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í dag endanlegan úrskurð þar sem hafnað var kröfu Sánagús ehf. um að fella úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að gufubað sem rekið er í grásleppuskúrnum Sækoti við Ægisíðu þyrfti starfsleyfi. Áður hefur verið sagt frá bráðabirgðaúrskurði nefndarinnar. Nefndin segir skýrt í lögum að atvinnureksturinn þurfi starfsleyfi. Sánagús hefur rekið baðstofu þarna í um tvö ár. Starfsemi er í Sækoti samkvæmt stundaskrá og kostar stakur tími 5.500 krónur. Reykjavíkurborg telur sig eiga skúrinn og krafðist þess í vor að hann yrði tæmdur. Það virðist ekki hafa verið gert.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 5:11:52 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗