Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“

RÚV ·

Eyjólfur Ármannsson mun leggja fram breytingu á fyrirhugaðri breytingu á Loftbrú. Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs var gert ráð fyrir 600 milljónum til Loftbrúar en nú þarf að óska eftir viðbót við það, um tvö hundruð milljónum. „Jú, við ætlum að gera það og hækka þá styrkinn á hvern fluglegg úr 7000 krónum í 9000 krónur og með því erum við að bæta við 200 milljónum króna. Þá mun það þýða það að það eru mestu fjárframlög til Loftbrúar sem hafa verið nokkru sinni,“ segir Eyjólfur. Frá því 2020 hefur Loftbrúin verið þannig að fólk á landsbyggðinni á rétt á sex niðurgreiddum flugleggjum innanlands á ári. Hver flugleggur var niðurgreiddur um 40%, óháð því hvað flugið kostaði. Eyjólfur kynnti á föstudag kerfisbreytingu á Loftbrúnni þar sem ríkið ætlaði að niðurgreiða fasta krónutölu, að upphæð 7000 krónur, í stað 40%. Mætti það mikilli mótstöðu bæði meðal almennings og ráðamanna. Í kjölfarið endurskoðaði hann ákvörðun sína og stefnir að því að niðurgreiða um 9000 krónur. Það þarf hins vegar að fara í gegnum aðra umræðu um fjárlög á Alþingi. „Við erum ekki í niðurskurði. Upphaflega talan miðaðist ekki við að við værum að skera niður heldur miðast við þá fjárveitingu sem við fáum í fjárlögum. Það er það sem við fundum út að 7000 krónur væru vel innan fjárlagaheimilda.“ Hafnar aðför að landsbyggðinni Íbúar landsbyggðarinnar hafa ekki setið á óánægju sinni með fyrirhugaðar breytingar. Bæði almenningur og sveitarstjórnarfólk hafa gagnrýnt breytinguna og var það til þess að Eyjólfur endurskoðaði upphaflegu ákvörðunina um að greiða 7000 krónur. Hann hafnar því að þetta sé einhver aðför að landsbyggðinni: „Ég hafna því. Við erum núna að fara að setja fjármagn sem nær nýjum hæðum í fjárlögum til Loftbrúar. Varla getur það verið aðför að landsbyggðinni.“ Hann telur að ákvörðunin hafi verið vel ígrunduð og hafi verið unnin vel, bæði innan ráðuneytisins og með Vegagerðinni. Framlög til Loftbrúar hækkað meira en almennt verðlag Eyjólfur segir einnig að tryggja verði samkeppni á flu

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 4:43:43 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗